Bjór og Gönguklúbburinn Ingólfur
Myndasíðan okkar!
12.08.2008 12:45:14 / óttar

BOG klúbburinn risinn upp?

JÆJA, þessi síða loksins komin aftur!
Held samt að voða fáir skoði þessa síðu.. efast að það taki sig að halda eitthvað áfram með hana.
En sá fyrsti sem kvittar fyrir sig hérna fær.....kókdós! (eða eitthvað annað sambærilegt)

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 19:38:26 / bsh

nýju meðlimirnir vekja þessa síðu til lífsins!

nú stendur yfir bjór smökkun hjá okkur þremur sem sjáum um bjórgagnrýni og er hafþór komin allaleið suður til að smakka með okkur hinum tveim. eru niðurstöður væntanlegar innan tíðar byrjaði dagskráin í gær fimtudag kl 16:00 og stóð framm eftir nóttu nú er hún hafin á ný og er talið að hún standi langt framm eftir.
kveðja úr múlanum haffi, siggi w og bjartur
p.s einnig koma myndir einnig frá viðburðinum

tilbiðjum bakkus!   

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 22:43:05 / Jobbee!

Blogg!

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 20:36:34 / steini árna

who cares :D

Góðan daginn yndislegu lífverur ;)

 

 



Jæja svona af tilefni þess að það eru en þá nokkrir sem koma inn á þessa síðu og það að sumarið sé að verða búið sem by the way er bara besta sumar sem ég hef upplifað hingað til :D þá ætla ég að drita hérna inn nokkrum línum og svona. Og já þetta blog.central rugl er hundleiðinlegt, ég var búinn að skrifa lengsta blogg sem ég hef skrifað í sögu bloggsins og ætlaði að staðfesta það þá þurrkaðist það náttúrulega bara út, helvítis rugl !!!! þannig að ég skrifa bara í word núna J

 

 



En nú sit ég hér í mínu nýja herbergi á Mýrargötu 5 og horfi yfir fjörðinn fagra sem reyndar ég sé bara hálfan af því að Verkmenntaskóli Austurlands blokkerar fjörðinn fyrir mér, en svona af því að ég er að tala um skólann þá byrjaði hann nú fyrir einhverjum vikum, alveg geðveikislegt stuð í honum, ójá :D en við fórum í mývatnsferð í vikunni og vá ég held ég hafi bara aldrei farið í skemmtilegra ferðalag... hmmm J en það gerðist svo sem ekkert merkilegt þar.

 

 



En hér eru nokkrir punktar um tilveruna akkurat núna og daginn í dag:

 

 



  • Er að blogga
  • Er að hlusta á Queen
  • Er að horfa á pabba labba upp í bílastæði
  • Fékk nýja bassamagnarann minn í dag
  • Var að borða pizzu
  • Horfði á Liverpool skíttapa fyrir Everton
  • Er að spjalla við Jobba á msn
  • Reyna að finna meira hvað ég á að skrifa hérna

 

 



En já ef ég sný mér nú aftur að sumrinu þá er þetta búið að vera geggjuð snilld og fyrir versló var alveg stanslaus drykkja og sukkerí og gaman :D  Það var náttúrulega Hróárskelda sem stóð upp úr og svo auðvitað Eistnaflug, Franskir dagar og Neistaflug á eftir því,  algjör snilld, svo var ég náttúrulega að spila í allt sumar og svona sem er auðvitað alveg hrikalega gaman.

En á mánudeginum um verslunarmanna helgina þegar ég var um það bil að ljúka við sumardrykkjuna þá ákvað ég að taka smá drykkjupásu, og er ég búinn að vera edrú í skal ég segja ykkur í rúmlega mánuð, eða bara síðan um versló... og er það bara nokkuð gott, að koma einhverju í verk um helgar annað en að liggja einhversstaðar bugaður af drykkjuskap og geta vaknað um svona hádegi ekki kl hálf fimm um helgar, hehe :lol:

 

 



Vil ég svo að lokum þakka einhverju fólki sem hjálpuðu til við að gera þetta sumar alveg massa gott:

 

 



  • Auðvitað allir strákarnir í Out Loud
  • Allir meðlimir í Ingólfi
  • Björn Ágúst Olsen Sigurðsson
  • Ægir Guðjón
  • Barði Westin
  • Ölver Tóta
  • Skúli Villa
  • Stebbi Magg (sem hélt flottustu rokkhátíð á Íslandi, Eistnaflug)
  • Og allir rokkararnir þar
  • Allir þeir sem ég var með á Hróárskeldu
  • Merkikertastelpurnar
  • Allir þeir sem ég djammaði með um Versló
  • Silvía Nótt
  • Birgitta Haukdal
  • Þeir sem héldu partí í Nesk eiga hrós skilið :D
  • Og bara allir sem telja sig eiga skilið að vera á þessum lista, hehe... en ég er alveg viss um að ég sé að gleyma einhverjum en það verður bara að hafa það :P

 

 



En jæja nú fer ég að segja þetta bara hið ágætasta blogg og svona í komandi framtíð þá ætlum við að setja inn myndir af roskilde og bara eitthvað af sumrinu, en ég lofa engu, höfum sagt þetta áður, þannig að það getur alveg verið að þið þurfið að bíða alveg jafn lengi eftir því, hahaha :haha:

 

 



Nú ætla ég bara að þakka fyrir mig, og ég ætla bara að þakka þeim líka sem nenntu að lesa þetta, þurfið svo ekkert að commenta því ég á ekkert von á því, en við bara sjáumst !!

 

 



Steini Árna kveður ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 19:31:32 / óttar

Mannabreytingar!

Jæææja krakkar, ég hef tekið þá ákvörðun að hætta að blogga á þessari síðu, þótt ég sé kannski ekki endilega hættur í BOG Klúbbnum, en ég bara einfaldlega nenni ekki lengur að blogga hérna!

Er kominn með ógeð á þessu blog.central rugli! Ég vona bara að hinir í BOG bloggi eitthvað og hafi gaman af þessu öllu! Ég er allavega fluttur hingað:

www.ottoman.bloggar.is

 

  Kíkið sem oftast:!:

Takk fyrir mig:!:

Óttar8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 22:17:07 / Jobbee!

NEW BLOGG!!!!!!

Verslunarmannahelgin er liðin.... munum lítið sem ekkert, mikið drukkið! Góð helgi og eru nokkrir meðlimir bog komnir í mjólkur pásu vegna of drykkju. En við munum halda áfram að koma með krassandi blogg ;) (eins og ávallt) hehe! Svo setjum við fljótlega inn mikið af uppsöfnuðum myndum, frekar mange helling! JEA! höfum ekkert að segja sko, erum bara inní höfuðstöðvum að drekka bjór og chilla! :) En jæja, erum farnir að drekka og gera eitthvað sniðugt! Biðjum að heilsa, sælir/sælar!

» 5 hafa sagt sína skoðun

09.07.2006 18:05:27 / steini árna

GGGGGGGGGGGGGGGGGG

helló fólk, heyrru við vorum á roskilde sem var alveg virkilega mikið stuð ójá mikið drukkið, og erum búnir að vera nett latir að blogga, en við tókum alveg böns af myndum þar og ætlum að setja þær inn við gott tækifæri, en annars þá nenni ég ekki að blogga eitthvað alvarlega núna, er að fara horfa á hm úrslitaleikinn já ég knattspyrnunördinn Steini Árna þannig að við sjáumst bara ! :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 01:49:12 / óttar

The Day Before Tomorrow

JÆJA, ÞETTA ER AÐ SKELLA Á!
Í fyrramálið munum við fara til Reykjavíkur þar sem við munum líklegast sötra smá bjór og svona, og bíða þangað til við förum á ROSKILDE á sunnudaginn! Ég get eiginlega ekki lýst því hvernig mér líður núna, en þetta er góð tilfinning!

Það er mjög margt sem ég er spenntur fyrir í þessari ferð:

  • drekka bjór
  • sjá fullt af góðum hljómsveitum
  • drekka bjór
  • djamma
  • drekka bjór
  • sjá og hitta fullt af furðulegu og vonandi skemmtilegu fólki
  • drekka bjór
  • FARA Í FYRSTA SINN TIL ÚTLANDA!
  • drekka bjór


Eins og þið sjáið þá er þetta ágætur listi og ég ætla sko að skemmta mér VEL!
Ég held samt að það verði einhver töf á að maður komist út því ég var að heyra að það verður eitthvað helvítis verkfall einmitt á okkar brottfarartíma!! En svona er þetta bara.

En annars er bara allt gott að frétta. Vinnan gengur bara vel. Helvíti nice að vera flokkstjóri, ég held að ég gæti ekki beðið um betri vinnu fyrir þessa litlu menntun sem ég hef!
Svo er líka algjör snilld hvað ég vinn með skemmtilegu fólki, annað en á öðrum stað sem ég hef unnið á!

btw, ein sjóðandi heit frétt hérna líka; ég er búinn að fá vinnu í pizza 67! Nóg að gera, nóg að gera :D

En ég veit ekki hvað ég á að skrifa meira.. er að spá í að fara bara að sofa núna. Það er langur dagur framundan!

Ég vill að fólk kvitti nú fyrir sig hérna, sama hvort þið hafið kvittað áður eða ekki, ég sætti mig ekki við færri en 20 comment (bjartsýni) þegar við komum heim frá Danmörku! Ef það verða fleiri en 20 komment hérna á síðunni þann 5. Júlí þá skal ég segja YKKUR LEYNDARMÁL! :D

 

Óttar8)

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 17:31:27 / óttar

Fiskabloggið

Jæja, ég held að það sé kominn tími á smá blogg :D
Ekki mikið að frétta af manni held ég, maður byrjaði að vinna í síðustu viku hjá bænum, helvíti ljúf vinna, svo byrjar maður sem flokkstjóri á morgun. Forvitnilegt að sjá hvernig það kemur út. Og talandi um morgundaginn, þá er "sixth day of the sixth month of the sixth year (06.06.06) = 666". Það passar ágætlega, bæjarvinnan að byrja og svona ;) "Randy Hickey: Oh no you didn't" hehe :D

Síðasta miðvikudag fóru ég, þorsteinn, Hafþór og HeLgA_B að veiða! ;) Svo bættust fleiri við, enda vilja allir herma eftir okkur :)
Við byrjuðum nú á því að festa einn spún í botninum (ég segi "við" þó að það hafi ekki verið ég sem gerði það, og það var ekki Þorsteinn og það var ekki Hafþór.. haha :haha: ) þannig að við þurftum að kaupa annan. Reyndar fengum við bara 1 fisk, en 'einhver' fékk smá aumingjakast og sleppti honum :D
En eftir það veiddum við ekki mjög mikið, nema hann Guðni, sem veiddi 72 risa þorska á 7 metra löngu veiðistöngina sem bróðir hans á. Gaman að því! Hérna koma nokkrar myndir frá atburðinum:

En vegna mikillar leti og fleira þá hefur ekki verið tekið neitt viðtal vikunnar, eða viðtal mánaðarins með þessu áframhaldi. En maður reynir að redda þessu fljótlega svo að þessa síða deyji nú ekki alveg.

Einnig er í vinnslu nýtt 'horn' hérna á síðunni, en það er "Nöldurhornið", fróðlegt að sjá hvernig það kemur út, en það er verið að vinna í þessu öllu saman.

En er ekki svo bíladagar á Akureyri 17. Júní. Er fólk spennt fyrir því? Hvað finnst ykkur...

Jæja, ég nenni ekki að hafa þetta lengra í dag... C'YA:!:

Óttar8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 00:52:48 / steini árna

drengurinn með ekki dekkin talar ekki

Hæhæ fólkes, ég var orðinn leiður á þessum titli þannig að ég hef ákveðið að koma með smá tilbreytingu, þó að þetta reyndar hafi verið alveg massa gott blogg hjá lufsanum sko :haha:

En mar verður nú að segja einhver vel valin orð af því að það er verið að reka á eftir manni, annars er voða lítið að segja, maður er bara búinn að vera að vinna sem er bara ljúft og er svo í fríi á morgun, 3 daga helgarfrí.... sem er bara geggjað sko. Svo var bara hellt sér í bílahreingerningar í kveld, bónaði drusluna mína og Guddi B bónaði kaggann sinn also :D

Og já hey finnst að við erum nú farinn að tala um dauða fugla kauða þá verð ég nú bara að segja eitt, ég keyrði á lítinn fugl í fyrradag, hann var nú bara í makindum sínum að baða sig í sólinni sem var reyndar ekki af því það var kvöld en allavega þá var hann eitthvað að sprikla eftir götunni og ég sá hann svo seint og ég hitti akkurat yfir greyið og þegar ég leit svo í spegilinn þá sá ég bara svarta klessu, mjög svo hugljúfur endir á þessu litla fuglalífi :lol:  en ég tók ekki mynd af honum en ég ætla að kalla hann bara Ingólf, hann dó fyrir hönd klúbbsins :( hehe rugl :D

En jæja ég held að þetta sé bara gott í bili, og Rúnar Óli Biggabjarnason þú veist að ég elska þig og það virðist sem þú sért að rústa þessari skoðanakönnun heldur engin furða með það fyrir mann eins og þig, með dúið í lagi:lol:

En jæja nú segi ég bara eins og Kata " tak sa meget og vi ses"

Cya fuckers !!!!


» 15 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 15:57:46 / óttar

drengurinn með dekkin talar...

Jæja, það er kominn laugardagurinn 13. Maí og það þýðir eitt; prófin eru búin hjá flestum, en ekki öllum samt, því einhver brjálæðingur ákvað að hafa nokkur próf á mánudaginn og svo sjúkrapróf á þriðjudag:!: Maður spyr sig hvort þetta er ekki eitthvað sem hefði mátt laga.. maður spyr sig. Þannig að maður situr hérna sveittur og lærir fyrir próf.. gerist ekki betra.


Ég vill byrja á því að segja frá því að það var keyrt á fugl útí sveit í vikunni, mjög leiðinlegt. Hann var nú ekki gamall og átti framtíðina fyrir sér í fluginu... ég skýrði hann "Fugli".

Við skulum hafa 1. mín. þögn í hans virðingu.:( (p.s. ég keyrði ekki á hann þannig að ekki koma með lame brandara hérna..

 


Á þriðjudag man ég ekkert hvað ég gerði, nema að ég var að spjalla við Jobba og Haffa þorsk á meðan þeir voru að þrusa eitthvað. Þá sagði ég þeim að fyrir svona 2 árum hefði komið gamall karl af einhverju skipi á land með nokkra kassa af Thule bjór sem var ólöglegur þaðan sem hann kom, hann var semsagt ekki íslenskur. Þessi karl rölti eitthvað hérna um bæinn með einhverja bjóra, svona 2 kippur kannski, og vissi ekkert hvað hann átti að gera við þetta. Þannig að hann ákvað bara að hann gæti ekkert losað sig við þetta þannig að hann ákvað að grafa þetta í einhverjum garði og myndi svo bara sækja þetta seinna þegar bjórinn væri leyfður þar sem hann átti heima. Þannig að hann enda í garðinum hérna í höfuðstöðvunum og gróf bjórinn niður.
Hvernig veit ég þetta?
Þegar ég sagði Jobba og Haffa þetta þá urðu þeir auðvitað mjög kátir, enda var þriðjudagur og mjög ánægðir með að geta fengið ókeypis að drekka, því það var jú þriðjudagur.
Þannig að þeir fóru að grafa og grafa og grafa og á endanum fundu þeir bjórinn... ég hafði ekkert að gera á meðan og tók því nokkrar myndir af atburðinum:

 

Svo erum við að prófa eitt á síðunni, en það er "viðtal vikunnar". Það var sjálfur gjaldkeri túttubyssufélagsins sem átti hugmyndina að þessu og viljum við þakka honum kærlega fyrir það:!: Við munum taka viðtal einu sinni í viku við einhverja manneskju, getur verið hver sem er, og svo munum við birta það hérna á síðunni... stuð! :haha:

hérna er smá listi yfir það sem er framundan, eða bara eitthvað rugl

  • Maður byrjar að vinna vonandi eftir helgi
  • Allir að skrá sig í bæjarvinnuna í sumar, það er málið:!:
  • Djamm næstu helgi, ekkert rugl..
  • Eurovision næstu helgi:!:
  • Er ekki frá því að það sé kominn fiðringur í magann fyrir hróaskeldu:!:
  • FKN klúbburinn verður nú að koma saman fljótlega.. þegar grasið verður grænna
  • Ég man ekkert hvað ég ætlaði að segja meira..

ALLIR að kvitta og segið ykkar skoðun á málinu:!:

Óttar...


» 22 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 19:08:35 / gilli

jebb bara fyrta bloggið hjá kjellinum

já hef hef svosem ekki mikið að segja það er kannski ástæðan fyrir því að ég blogga ekki oft:lol: en það er góð helgi frammundan feit djamm , maður er nefnilega að fara á  frítt brenninvíns djamm á föstudaginn í boði skíðamistöðvarinnar og svo kannski bara kíkja á ball eftir ef maður verður ekki dauður undir borði einhverstaðar en já sjáumst bara "pöddufull" á föstudaginn!!!! :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 02:03:55 / steini árna

HEYHEYHEY

Jæja góðan dag gott fólk, frekar langt síðan maður hefur bloggað en það er um að gera að segja nokkur orð hérna...

Annars var helgin bara ágæt skom, chillað bara yfir nokkurm bjórum á föstukveldinu og svo djamm á laugarkveldinu, helvíti gaman bara, enduðum hjá Barða Western, en þar var einmitt bloggið sem hér er á undan framið, þar sem Auður systir Hemma fór á kostum :lol: jájá ný skoðanakönnun og alles, held það sé allavega enginn í vafa um það hvað hann Brúnki Rúnki kýs... ;)

Annars hefur voðalega lítið drifið á dagana, ekki nema bara það að prófin standa nú yfir og svo er maður bara byrjaður í ræktinni, svo bíður maður bara eftir því að byrja að vinna á Mánudaginn, JEIHH :haha:

Svo hvet ég alla til þess að mæta á lokaball VA sem verður haldið í Egilsbúð á föstudaginn, YEAH !!! vonandi að við sjáum alla blindfulla og vitlausa á þessu 16 ára balli, hehe....

En jæja það er best að fara að hætta þessu og koma sér í háttinn, cya fuckers !!!

Steini Árna kveður að sinni :klikk:

 

P.s. Minnum á "nýjustu" myndirnar á myndasíðunni:
http://myndir.ekkert.is/bog_klubburinn/21-23april/


» 11 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 05:11:14 / steini árna

BARÐI WESTERN

Jæja hva segjiði..?:S...Auður heiti ég og finnst alveg geggja gaman að skrifa herna inná þar sem ég veit ekkert hverjir lesa þetta.. en ég allaveg á ég að hmm.. á ég að blogga hérna...;) langar að koma því á framfæri fyrst ég er nú að þessu að ég er eiiginlega algjör lúúser.:/ þorði ekki að keyra böggí bílinn hans Hemma. Eða þúst hann er sko eiginlega aðal gaurinn í bænum!!!! hhahaha ég og systir mín fóum og ætluðum að keyra þennan geggjaða bíl en þar sem þetta er svo lítill bær og allt svo fljótt að fréttast þá eiginlega voru bara allir komnir þarna þar sem við vorum veit ekkert hva það heitir og þá þorðum við ekkert að gera neitt, þúst aaaalgjöööööööirr AULAR!!! ég svo sem´hló bara að henni því mer fannst hún þvílíkur auli því hún er þó komin með bílpróf sko fyrir 10 ÁRUM en ég er nú bara rétt byrjuð í ökutímum;)

Núna samt þá er ég á Þiljuvöllum 29 á efri hæð ég vorkenni þeim sem hafa gleymt því pargtýi marr.. já sko kostningabaráttan á Ísafirði hún snýst sko ekkert um eittvhað sjávarútvegsdæmi heldur bara einhverja helvítist háskólasetur.. en já þeetta eru þið öll bara að miskilja! Sérstaklega þar sem ég er að blogga (kann það ekki einu sinni!)

Elskurnar mínar ég heyri bara í ykkur seinna.. bæbæbæ;););););**** (ekki taka aleg mark á mér;))


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 18:44:15 / þorskurinn mikli

smá ljóð í tilefni dagsins!!

Hnakka ljóð

 

 Stór og sterkur þykist hann vera,
Stóra vöðva skal hann bera.
Ekki má vanta hárið flotta,
Hann mun aðeins stráka totta!

Í dökkum skorum þeir vilja spranga,
Í ljósabekkjum þeir mikið hanga.
Kassinn fremur heilaþvott á honum,
Massinn er eina sem skilur þá frá konum.

Augun blá og hárið ljóst,
Aðeins vantar á þá brjóst.
Glænýr, settur saman úr pakka,
kannt'að setja saman hnakka?

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3